Vikulegir útdrættir; Mestu vinningslíkurnar - skynsamlegasti kosturinn:

Í ár verða 5 vinningar dregnir út, hver að verðmæti 40 milljónir króna. 
Heildarfjöldi vinninga verður 52.880. 
Heildarverðmæti vinninga er rúmur milljarður eða 1.461.200.000 kr.
Sjá nánar á heimasíðunni ”Vinningaskrá” þar sem hægt er að sjá útdráttardaga og upphæðir í vinninga.
 

Hvað kostar miðinn?

Einfaldur miði kostar 1.900 kr. og sá tvöfaldi 3.800 kr.
Hægt er að velja miða hér á síðunni ”Kaupa miða” eða velja “þitt happanúmer”. Miði er möguleiki.
 

Tvöfaldaðu vinninginn.

Hægt er að kaupa tvöfaldan miða í númerinu sem gefur tvöfaldan vinning.
Aðalvinningar verða þá:
5 aðalvinningar, hver að verðmæti 40 milljónir króna.
5 aðalvinningar á 8 milljónir hver.
42 aðalvinningar á 4 milljónir hver. 
Lægsti vinningur verða þá 30.000 krónur í stað 15.000 krónur ef um einfaldan miða er að ræða.
Vinningsupphæðir eru lagðir inn á bankareikning vinningshafa.
 

Vinningar greiddir út í peningum.

Vinningar eru millifærðir inn á bankareikning miðaeiganda.
 

Skattfrjálsir vinningar.

Allir vinningar í Happdrætti DAS eru skattfrjálsir og því kemur vinningsupphæði öll til greiðslu við afhendingu.
 

Happdrætti DAS er áskriftarhappdrætti.

Hægt er að kaupa miða með kredikortum með því að fylla út pöntunarformið hér á forsíðunni. Þetta eru boðgreiðslur og standa í ótiltekinn tíma þ.t. kaupandi segir upp áskrift. Hægt er að senda uppsögn á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Ath. ef uppsögn er fyrir 10. dags mánaðar mun ekki innheimtast af korti næstu mánaðarmót á eftir. Ef uppsögn er eftir 10. dags mánaðar mun uppsögn taka gildi mánúði síðar. (miðað er við mánaðarmót)
 

Hvenær fer útdráttur fram?

Dregið er alla fimmtudaga komi þeir ekki upp á frídegi. Fyrsti útdráttur hvers mánaðar fer fram kl. 16:00. Aðrir útdrættir fara fram kl. 09:00. Fljótlega eftir útdrátt eru vinningsnúmer sett inn á heimasíðuna.
Vinningshafar fá SMS tilkynningu um vinning.
 

Hvenær er ósóttur vinningur fallin úr gildi?

Í reglugerð með lögum um Happdrætti DAS sem Innanríkisráðuneytið setur segir í 20. gr.: “Vinningar, sem enginn hefur vitjað innan eins árs frá útdrætti, falla úr gildi.”
 

Uppsögn á miða.

Uppsögn þarf að berast skriflega með tölvupósti, fyrir 10. hvers mánaðar. Sjá nánar ”Um DAS” og þar er flokkurinn ”Segja upp áskrift”

 

Vinningslíkur.

  • Happdrætti DAS er með mestu vinningslíkurnar af öllum íslenskum/erlendum happdrættum sem draga vikulega
  • Happdrætti DAS einn á móti 80 þúsund.
  • Í Lottó er það einn á móti 658 þúsund. 
  • Í Víkingalottó einn á móti 12,2 milljónum  
  • Í EuroJackpot einn á móti 59 milljónum möguleika.