08. Mars 2023

 

Stjórn Happdrættis DAS hefur ákveðið að ráða Valgeir Elíasson sem framkvæmdastjóra Happdrættis DAS. Hann mun hann starfa við hlið fráfarandi forstjóra, Sigurði Ágúst Sigurðssyni, fram í maí n.k.

Valgeir þekkir vel til starfa Happdrættis DAS, en hann starfaði sem deildarstjóri bókhalds- og launadeildar Hrafnistuheimilanna, en bæði happdrættið og Hrafnistu-heimilin starfa undir hatti Sjómannadagsráðs.  Valgeir er menntaður viðskiptafræðingur með M.a.cc. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2011.  Hann hefur unnið hjá Hrafnistu-heimilunum í 11 ár en þar á undan vann hann hjá KPMG og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.  Hann er giftur og á þrjú börn og þrjú barnabörn.

 

Á þeim rúmum 69 árum sem Happdrætti DAS hefur starfað hefur það verið fjárhagslegur bakhjarl í allri uppbyggingu Hrafnistuheimilanna auk þess sem 40% af hagnaði happdrættisins rann til uppbyggingar dvalarheimila aldraða út um land allt í 25 ár.

 

Valgeir hlakkar til að taka við nýju starfi í vor.  „Ég veit að Happdrætti DAS hefur skilað góðu búi til þeirra málefna sem það styrkir, þ.e.a.s Hrafnistuheimilin á höfuðborgarsvæðinu. Mikið grettistak hefur verið unnið í að nútímavæða hjúkrunarheimilin og gera þau þannig að þeim sem dveljast þar líður mjög vel.  Happdrættið hefur stutt einna helst við þessa nútímavæðingu og mitt starf mun snúast um að halda þessum stuðningi áfram.“